Ég um mig frá mér til mín!!!!!!!!!!!!
   

<< May 2012 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed



6.7.06
Ég man,ég veit

Í gær voru 12 ár síðan pabbi minn dó. Í gær hafði ég þekkt pabba minn jafnlengi og ég hafði ekki þekkt hann. Minn helsti ótti í mörg ár hefur verið að minningar mínar um hann dofni. Að andlitið verði óljós,lyktin,röddin. Alltaf hef ég verið hræddur um að það myndi dofna og svo kannski hverfa. EN! ég man eftir ótrúlegustu smáatriðum. Ég man eftir andlitinu,lyktinni sem var af honum,hvað það var mjúkt og hlýtt að faðma hann. Ég man eftir gráu,skítugu vinnupeysunni hans. Ég man eftir glottinu á andliti hans. Ég man eftir ferðalögunum með honum og minningum eins og okkur tveimur einum heima í rafmagnsleysi og blindbylur úti. Ég man eftir daglegum ferðum okkar í gróðurhúsin eftir að hann veiktist. Ég man eftir krampaköstunum sem hann fékk daglega í gróðurhúsunum. Ég man eftir hve hræðilega lengi mínúturnar liðu þangað til að þau hættu. Ég man eftir ógeðslega lúpínuseyðinu sem að hann fullyrti að virkaði. Ég man eftir að liggja við hlið hans upp í rúmi að lesa meðan hann hvíldist. Ég man eftir að vakna við hlið hans eftir að hafa sofnað. Ég man eftir að hafa átt skemmtilegan dag upp í Álftagróf. Ég man eftir að sjá bílinn hans Halla prest keyra upp að bænum. Ég man eftir að tala við Halla prest í herberginu hans Ólafs. Ég man eftir áfallinu við fréttir sem að ég bjóst aldrei við að fá. Ég man grátinn og sársaukann. Ég man hve grunlaus ég var um hvað krabbamein gæti gert. Ég man hve sár ég var yfir að hafa aldrei fengið að kveðja hann. Ég veit að ég fæ ekki fleiri minningar með honum. Ég veit að ég á eftir að endurupplifa þær gömlu aftur og aftur alla mína ævi.

Posted at 7/6/2006 3:24:36 am by HalliB
Comments (2)  

16.6.06
LOKSINS LOKSINS LOKSINS

Loksins eru morgnarnir farnir að vera rólegir aftur í vinnunni. Allt búið að vera í rugli síðustu 2-3 vikur. Annars er ég feginn að það er að koma helgi þar sem ég er búinn að vera að mæta kl 5 á morgnana/nóttunni þessa viku og síðustu og svo þarf ég að gera það í næstu viku líka. 17. júní er alveg óplanaður hjá mér en ég býst nú við því að ég fari á landsleikinn en annars er ég bara að bíða eftir næstu helgi því þá eru kappreiðar heima í sveit. Þó að ég sé nú frábær hestamaður þá tek ég ekki þátt þar sem ég vil ekki skyggja á hina miðlungs hestamennina :) en ég ætla að reyna að fara á hestamannaball og miðnæturreiðtúr þar sem ég á góðar minningar af síðasta skipti sem ég fór.

Posted at 6/16/2006 6:47:04 am by HalliB
Comments (3)  

28.4.06
Var klukkaður þannig að....

1. Which book has made the greatest impact on you? Either as a good read or as a "aha" experience? "Alkemistinn".Frábær bók um það að gera drauma þína og þrár að veruleika.

2. Which genre do you read most? Novels, crime-stories, biographies, poetry or something else? glæpasögur eftir Jack Higgins ofl.

3. What was the last book you read? Forsetaránið eftir Alistair McLean

4. Which sex are you? GREAT SEX 


Posted at 4/28/2006 6:09:46 am by HalliB
Comment (1)  

24.3.06
Elísabet

Elísabet er leiðinleg. Elísabetu hefur tekist að láta mig fá ógeð á sér. Elísabet er fáránlegt nafn. Elísabet er leiðinleg bílatryggingaauglýsing.

Posted at 3/24/2006 1:49:18 am by HalliB
Comments (2)  

7.3.06
Gaman saman eða eitthvað svoleiðis

Mér finnst að sjónvarpsþættir eigi ekki að fá að enda á "to be continued". Var að horfa á Prison Break og hef alls ekki verið þekktur fyrir þolinmæði þannig að ég ætla að svindla og horfa á hann í tölvu einhversstaðar. Annars var ég að rekast á bloggsíðu hjá manneskju sem ég kannast við.Það er alltaf gaman.Það að rekast á svoleiðis er orðið eins og að rekast á einhvern út á götu og komast að því hvað sé um að vera í þeirrar persónu lífi.

Posted at 3/7/2006 10:40:37 pm by HalliB
Comment (1)  

26.2.06
Vöðluheiðarvegavinnuverkamannavinnuskúrslyklakippa

Oft hellist yfir mig svo mikil bloggleti að það hálfa væri nóg. Mér líður stundum eins og ég sé að gefa skýrslu um hvað ég sé að gera í lífi mínu. Skýrslur og skipulag hafa aldrei verið mín sterkasta hlið þannig að ég ætla að fara að breyta til og fara að skrifa meira um mínar hugsanir frekar en aðgerðir. Nenni samt ekki að skrifa þær núna en þær koma bráðum.

Posted at 2/26/2006 3:58:32 am by HalliB
Comment (1)  

27.1.06
Æj ég veit aldrei hvað ég á að skrifa í Title

Er að undirbúa mig undir að fara í afmæli í kvöld.Fer í kokteilboð og svo í lokahóf JC á Lækjarbrekku annað kvöld.Upplýsingar um helgina liggja fyrir á sunnudaginn.Ein spurning samt.Ef Halli er minni en Palli en stærri en Kalli og aðeins hærri en Alli er þá Valli sem er stærri en Palli hæstur?Kveðja Halli

Posted at 1/27/2006 8:24:31 pm by HalliB
Comments (2)  

21.1.06
Ákvað að skella þessu inn líka

1. Hver ert þú? 2. Erum við vinir? 3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig? 4. Ertu hrifinn af mér? 5. Langar þig að kyssa mig? 6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það. 7. Lýstu mér í einu orði. 8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst? 9. Lýst þér ennþá þannig á mig? 10. Hvað minnir þig á mig? 11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera? 12. Hversu vel þekkiru mig? 13. Hvenær sástu mig síðast? 14. Hefur þig einhvern tíman langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það? 15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?

Posted at 1/21/2006 4:11:40 pm by HalliB
Comments (4)  

Afmælisdagurinn minn

Your Birthdate: September 21
You're a restless rebel with an unpredictable nature. Bright but unbridled, you tend to seek out wild experiences over new ideas. People are frustrated by your great potential, but you love your unconventional life. You're a heartbreaker. People get attached to you, and then you're gone. Your strength: Your thirst for adventure Your weakness: Not taking time for slow pleasures Your power color: Hot pink Your power symbol: Figure eight Your power month: March

Posted at 1/21/2006 3:54:21 pm by HalliB
Make a comment  

15.1.06
Lífið er lotterí og ég tek þátt í því

Nú er maður bara hálf þreyttur.Asnaðist til þess að fara seint að sofa á fimmtudagskvöldinu sem er ekki sniðugt þegar maður vaknar um fimm leytið til þess að hafa sig til í vinnuna.Föstudagurinn 13. byrjaði svo með þvílíku veseni vegna veðursins en sem betur fer fyrir Pósthúsið að þá hafa þeir snilling í vinnu.Það er að segja MIG.Svo seinna um daginn var starfsmannafundur og smá innflutningspartí.Fór svo á laugardagskvöldið á bjórkvöld hjá JC og síðan á ball með Pöpunum.Djöfull var gaman á ballinu.Enda vaknaði ég í morgun raddlaus og ennþá með hellu fyrir eyrunum.Nú er maður bara að bíða eftir að lærið sem er í ofninum sé tilbúið svo maður geti fengið sér almennilega sunnudagsmat. p.s. Ég er svo feginn að Jónas og Mikki eru hættir.Ég vona að nýju ritstjórarnir reynist betri.

Posted at 1/15/2006 7:39:50 pm by HalliB
Comment (1)  

Next Page